|
|
19.08.2006 13:11:48 / vaggan
Góðan daginn.
Mikið afskaplega er langt síðan ég bloggaði síðast, meira segja
svo langt að ég mundi varla hvernig ég átti að logga mig
inn Var nú alltaf að spá í að blogga bara ekkert meir en
vegna mikillar eftirspurnar ákvað ég að henda inn einn færslu eða
svo... En alla vega, var að rísa úr rekkju á menningarnótt
eftir skemtilegt bjór-hárlitunarkvöld hjá sös í gær. Það
virðist viðra ágætleg til menningar í dag svo það er aldrei að vita
nema maður labbi í bæinn á eftir og drekki í sig
menningarviðburðina.
Ér búin að fá nýja vinna á jómfrúnni, fyrsti dagurinn í
gær. Var beðin um að vinna í dag aftur en afþakkaði
pent. Hefði sjálfsagt breytt menningarnóttinni miklu í
ómenningarnótt fyrir hitt staffið vegna kunnáttuleysis og
vandræðagangs í þessari geðveiki. En mér líst svakalega vel á
nýja djobbið og fæ vonandi ágætis aukavinnu þarna í vetur með
skólanum.
Já skólanum, haldiði að mín sé ekki að fara í háskólann. Nú er
maður loksins að verða alvöru stúdent.... Er orðin svaka
spennt enda búin að vera í sumarfríi síðan í lok júní og hef
líklega aldrei á ævinni verið iðjulaus í jafnlangan tíma. En
sumarfríinu góða verður slúttað með utanlandsferð. Haldiði að
bojfrendið hafi ekki verið að bjóða skvísunni til Krítar 28.
ágúst. Ohh hann er svo sætur. Þannig að kannski að
maður fái eitthvað smá tan í sumar þrátt fyrir litla sól á
Íslandi.
Jæja ég ætla að láta þetta duga og fara njóta meninngarinnnar og
sólarinnar 
Kv.V
»
26.03.2006 22:12:30 / vaggan
Hæhæ
Það er víst alltaf verið að pressa á mig að halda áfram að
blogga.... Átakið gengur enn illa, held að það fari að verða
óþarfi að taka það fram lengur... En skemmtisögur
segiði...? Jújú eitt og annað búið að vera gerast,
kærastinn hélt uppá ammilið sitt um daginn og við skötuhjúin vorum
í mótökunefndinni í okkar fínasta pússi. Veislan gekk svaka
vel og mikið fyllerí og mikið tjútt. Svo var árshátíð í gær
hjá vinnunni hans og þangað fórum við líka aftur í fína
pússinu. Það er eins gott að maður eigi nóg af boðlegum
leppum fyrir öll þessi fínleg heit
Haldiði svo ekki að mín hafi farið á þing unga fólksins í dag og
látið plata sig til að vera vara þingmann fyrir samband ungra
jafnaðarmanna. Já hún Tinna mín bað mig rétt svo að kíkja í
hátíðarsal HÍ til að kjósa eitthvað bla bla. Jújú af
einskærri góðmennsku gerði ég það, enda sagði hún að þetta mynda
taka klukkutíma í mesta lagi. Þegar ég kom svo byrjaði ég á
því að bíða eftir herlegheitunum í nokkra stund og svo byrjaði
atkvæðagreiðslan sem ég komst svo að, að tæki engan klukkutíma
heldur svona tvo til þrjá... Sat nú samt ekki allan tímann,
greiddi þarna nokkur atkvæði og fór svo til annara starfa, þ.e.a.s.
í ísbíltúr. En ég verð nú að viðurkenna að þetta var nú bara
soldið skemmtilegt. Allt voða formlegt og sonna, upplifði mig
svona soldið mikilvæga skiljiði... Sei sei kannski að maður
verði valdasjúk í kjölfarið. Það má þá allavega skrifa það á
þig Tinna mín 
Nú og svo er það bara krókurinn sittý um næstu helgi. Er
boðin í 25 ára afmæli á laugardaginn hjá Hrund og mun að sjálfsögðu
ekki láta mig vanta þar Svo verður líka heljarinnar
fjölskylduveisla hjá okkur þar sem við verðum öll þarna í
chillinu. Sös er loks að flytja aftur í höfuðborgina og við
ætlum að hittast öll á króknum áður en þau fara úr
jöklatúninu.
Anyways reyni að láta ekki líða svona langt áður en ég
blogga næst 
Kv.V
»
09.03.2006 14:23:53 / vaggan
Sælar stelpur!!
Veit ég hef verið hundlöt að blogga en það er nú bara vegna þess
að ég er í djúpum skít í átakinu og þar sem þetta á nú að heita
átaksblogg þá finnst mér þetta hálf skítt sko... En allavega þá er
ég ekki alveg að ná mér uppúr ruglinu en þetta er samt aðeins að
koma svona smátt og smátt. Ætla að plata Ebbu grasekkju í
spinning með mér í dag og reyna að komast í heilsugírinn. Það
er alveg merkilegt hvað maður getur verið linur í þessu. Á
hverjum degi hugsa ég; jæja nú byrja ég í átakinu aftur, er löngu
komin með ógeð á sykri, viðbjóði og hreyfingarleisi. En hvað
gerist?? Ég nenni ekki í ræktina, borða alltof mikið brauð, alltof
lítið grænt og er bara í einhverri vitleysu... pirr pirr
Og er nottla ekki búin að þora í vigtun í margar
vikur, uss þetta gengur ekki lengur 
Anyways, nóg af væli... Er svo bara í fríi í dag og hvíli
mig fyrir komandi vinnuhelgi. Nýkomin úr klippingu og er
algjör skvísa Kíkti líka í skóbúðir og sá
gullskóna sem ég er búin að láta mig dreyma um lengi. Sá
svo líka aðra bleika, æðislega sæta sem mig langar líka, í svona
til að flækja málin aðeins hehe. Svona erum við stelpurnar
skrítnar, alltaf jafn flóknar 
Kv.V
»
02.03.2006 13:53:52 / vaggan
Góðan daginn.
Fréttir af átakinu... Æji hef alveg verið að kúka á mig
í þessu en er rétt að ná mér á strik aftur núna. Þarf að
vera súper dugleg núna næstu tvær vikur því þá fer ég í þrítugs
afmæli hjá kærstanum og verð að líta þokkalega út þegar ég hitti
allan þennan hóp . Segi ykkur meira frá því þegar ég er
farin að gera eitthvað af viti
Anyways, voða lítið að frétta af skvísunni þessa dagana,
fór reyndar á píkusögur í borgarleikhúsinu í gær. Þingkonur
voru að lesa píkusögurnar í þetta skiptið í tilefni V-dagsins og
stóðu sig alveg eins og hetjur. Þetta var alveg rosa gaman og
mikið hlegið og næstum því grátið líka...
Kv.V
»
23.02.2006 13:18:10 / vaggan
»
16.02.2006 18:15:00 / vaggan
Sælar 
Þetta er nú meira djöfuss óveðrið í dag. Ég fauk nánast í
vigtun áðan og komst að því að ég hef lést um 800 grömm á
síðastliðinni viku. Það er alveg ágætt og ég er bara ánægð
með það. Geri samt ráð fyrir að léttingurinn hefði orðið
meiri ef leiðindaskjóðan hún rósa frænka hefði ekki komið í
heimsókn... Æji það var samt ágætt að hún kom, var eitthvað sein á
ferðinni í þetta skiptið og ég var nú bara komin með nettar
áhyggjur af þessu... En ég ætla halda áfram að skrifa niður
á dagbókarblaðið allt sem ég borða. Þvílík snilld sem það nú
er, ekkert smá aðhald í því.
Ég er að fara á tónleika í kvöld á þjóðleikhúskjallaranum með
hljómsveit sem kallar sig The Rushes. Alveg brilliant, bresk
hljómsveit sem við sáum á airwayves. Þetta verður örugglega
hið skemmtilegasta kvöld 
Jæja ætla láta þetta duga í bili og fara elda.
Heyrumst Vaggan 
»
14.02.2006 15:27:00 / vaggan
Góðan daginn 
Já er ekki lífið yndislegt stelpur mínar...? Var vakin í
morgun með rauðri rós, kertljósi, morgunmat og kaffibolla af þessum
æðislega sæta strák... eða já kærasta... best að vera ekkert að
skafa af því hehe
Skvísan er bara í góðum gír og allt gengur eins og í sögu í
átakinu. Er alveg búin að vera 100% í matarprógramminu og
skrifa samviskusamlega niður allt sem ég borða. Það er ekkert
smá sniðugt að hafa svona dagbók svo maður geti fylgst almennilega
með þessu. Hlakka til að fara í næstu vigtun og sjá
árangurinn 
Er svo farin að hlakka mikið til helgarinnar. Það verður
nú kannski sukkað soldið á föstudaginn í tilefni afmælis sem
mér er boðið í hjá Tinnu. En það er allt í lagi, er löngu
ákveðið og verður örugglega geggjað gaman þar
Eníveis, hafið það gott 
Kv.V
»
10.02.2006 17:45:06 / vaggan
Góðan daginn 
Jæja þá er komin föstudagur og vinnuhelgi hjá mér að hefjast á
morgun. Það er bara ágætt, þá get ég frijað mig frá tjúttinu
svona einu sinni, hehe hljóma eins og argasta fyllibytta
Fór nú samt aðeins á pöbb í gærkvöldi til að fylgjast með kosninga
úrslitum í háskólapólitíkinni. Þó ég sé ekki í háskólanum þá
fóru kosningarnar ekki alveg nógu vel. Já maður verður víst
að styðja sitt fólk Er það ekki Tinna ???
En að aðalmálinu... Fór í vigtun í gær og skeit alveg uppá
bak. 600 gr í plús þessa vikuna og ég er alveg hundfúl
Er búin að vera hjakkandi eitthvað upp og niður um 1
kíló til og frá í þrjár vikur núna og er bara alls ekki ánægð með
stöðuna. Vældi aðeins í Kristínu vigtarráðgjafa og hún sagði
mér að skila dagbók á næsta fundi þannig að nú verður maður að
standa sig Ætla taka 100 % viku núna og það er eins gott
að það verði almennilegur léttingur í næstu viku...
Svo rakst ég á þennan fína kílómarkað á fötum þegar ég var að
labba á laugaveginum áðan. Stóðst nottla ekki freistinguna að
kíkja inn og labbaði svo út með eitt kíló af fötum og 2500 krónum
fátækari. Þetta var samt fínt verð, keipti jakka, peysu og
tvö pils fyrir þennan pening. Það er nú bara ágætt myndi ég
segja. Kemst reyndar ekki í annað pilsið ennþá en það er
ágætt að hafa eitthvað að stefna að. Hef nú reyndar nóg af
fötum á stefnuskránni því Dísa er búin að hrúga á mig fötum, sum
sem ég kemst ekki í fyrr en eftir svona 3-5 kíló 
Jæja góða helgi stelpur 
Kv.V
»
08.02.2006 00:24:49 / vaggan
»
05.02.2006 18:26:17 / vaggan
Já helgin er búin að vera ein sú rólegasta í manna minnum.
Er bara búin að vera heima að dúlla mér í dag og gær og viti menn,
við Kolla framkvæmdum stórhreingerninguna sem hefur verið á döfinni
síðan í október. Ekki amalegt... Heimilið er gjörsamlega spotless,
búið að skúra og bóna, þurrka af og endurraða.
Annars er óskaplega lítið að frétta eitthvað... ddv-ið
er búið að búið að vera hálfkæruleisislegt um helgina en samt
ekkert svindl að ráði. Kannski aðeins of litlir grænemtis- og
vatnsskammtar en það reddast, kemur vonandi ekki að sök.
Jæja, ætla fara halda áfram að hafa það huggulegt... 
Kv.V
»
03.02.2006 01:00:37 / vaggan
Hæ hæ 
Jább fór í vigtun í morgun eftir spinning tíma og er búin að
léttast um 900 gr í þessari viku, nokkuð gott bara Er
allavega komin á rétt skrið eftir að hafa þyngst í síðustu
viktun. Þá þarf ég að missa 1,8 kíló á næstu tveimur vikum
til að vera á áætlun, á víst að vera 77 þann 15 febrúar. Það
tekst örugglega, þetta gengur allt saman... Svo er ég búin
að vera rosalega dugleg að mæta í ræktina undanfarið, er að komast
í alveg ægilegt form En ég verð að sleppa ræktinni á
morgun því ég þarf að leggjast í saumaskap eftir vinnu. Málið
er að ég er að fara á eitís ball annað kvöld og mig vantar tjull
pils. Er búin að redda mér kjól sem ég ætla að breyta í pils
og sauma svo tjullið neðan á, ekki sneddý?? Svo verð ég með
hárgreiðslu eins og Hófí fegurðardrottning var hérna í denn,
bleikan kinnalit og varalit og þá er þetta komið, aðalskvísan á
ballinu 
Annars er lítið að frétta af mér þessa dagana... Við vinkonurnar
borðuðum hérna saman í gærkvöldið og spjölluðum um lífsins gagn og
nauðsynjar. M.a. skiljum við ekkert hvað er að gerast með
íslenska dagskrárgerð í sjónvarpinu. Hvað er málið með
endalausa þætti um djammið, strákapör og einhverja helv...
vitleysu. Jú okei, strákarnir á stöð 2 eru að gera sig og sá
þáttur hefur lifað góðu lífi en kommon, þetta er orðið aðeins of
mikið af því góða. Auk þess sem þessir þættir eru svo þunnir
og leiðinlegir að það er varla horfandi á þetta. Greinilegt
að hæfniskröfurnar hjá þeim sem sækja um á Sirkus eru að fólk á
vera fallegt, strípað, ljósabekkjabrúnt og heimskt... Úff það
er greinileg ekkert pláss fyrir fallegar OG klárar skvísur
eins og okkur í sjónvarpsheiminum. Já það er vandlifað í
þessum heimi...
Anyways, góða helgi og allir saman nú: SÍS 
Kv.V
»
30.01.2006 20:21:15 / vaggan
Komiði sælar allar saman.
Þá er komin mánudagur og byttan komin í átakið aftur,
hehe. Neinei ég stóð mig nú alveg ágætlega þrátt fyrir allar
vínveitingarnar um helgina. Er jafnvel að hugsa um að hafa
næstu helgi djammfría en ætla samt ekki að lofa neinu þar sem það
er nú ansi langt í hana ennþá... Annars er bara búið
að ganga ljómandi vel í dag og ég fór í alveg massa gönguferð
áðan. Ákvað að sleppa ræktinni og fara út að ganga frekar í
tilefni góða veðursins og það var alveg frábært, alveg geggjað
veður, bara næstum komin vorhugur í mann. Annars er ég
eitthvað voðalega afslöppuð í átakinu mínu þessa dagana. Er
líka orðin svo sátt við mig eins og ég er orðin núna þó að það megi
alveg gera aðeins betur. Er alveg sátt við að þessi síðustu
kíló fara á aðeins lengri tíma en öll hin. Þetta kemur allt
með vorinu bara 
Var að semja bréf áðan sem ég þarf að senda til nokkurra
aðila. Þetta bréf er fyrir hönd alls ófaglærðs starfsfólks á
vinnustaðnum mínum þar sem við erum að krefjast leiðréttingar á
arfa lélegum launum okkar. Yfirmaðurinn minn stakk uppá mér
til verksins og hvatti mig til að senda þetta bréf. Ég ekkert
smá stolt, mín bara orðin baráttukona En það er eins
gott að þetta gangi í gegn því annars er ég hætt og það er nú
heldur leiðinlegt fyrir þetta annars ágæta elliheimili, því annar
eins starfskraftur er vandfundinn skal ég segja ykkur 
En jæja best að hætta tuðinu 
Kv.V
»
28.01.2006 19:29:08 / vaggan
Já það má segja að það sé bara hálfgerð þynnka á þessum bæ
Fór með Tinnu skvísu á tjúttið í gærkvöldi og sporðrenndi
nottla nokkrum bjórum eins og ekkert væri sjálfsagðara... Það er
nefnilega ansi snúið að vera bæði fyllibytta og á danska kúrnum
skal ég segja ykkur. En það verður að hafa það bara, ég
er greinilega fíkill af guðs náð og verð að taka því með
jafnaðargeði... Já og plús það að ég reykti í gær þannig að
ég er bara alls ekkert að standa mig á öllum vígstöðvum. En
ég ætla ekkert að reykja meira. Mataræðið er búið að vera
alveg fínt sko þannig að ég vona að ég sé ekkert að þyngjast þó ég
sé í ruglinu. Ætla líka að vera dugleg að fara í ræktina í
næstu viku.
Jæja þá er ég búin að deila með ykkur syndum mínum og ætla fara
borða eitthvað. Góða helgi allir.
Kv.V
»
26.01.2006 22:42:22 / vaggan
Steig á vigitna í dag og ég hef þyngst eins og ég gerði reyndar
ráð fyrir. Átti nú von á einhverjum grömmum en ekki heilu
kílói maður... Púff, ég má sko aldeilis sparka í rassin
á mér núna og brenna því af mér eins og skot. Helv...
blammering, en svona er'etta þegar maður svindlar, og svo var ég
reyndar veik þarna í síðustu viku, gæti verið eitthvað allt í rugli
bara. En stelpur, ég er að hætta að reykja (hætti á
þriðjudag) og það er soldið erfitt að vera bæði í átaki og
reykbindindi. Hafið einhver ráð við því þegar maður er alveg
að missa það í einhverjum sveiflum (líkamlegum, tilfinningalegum
eða eitthvað, kann ekki alvega að útskýra þetta) ?? En ég hef
ekkert verið að detta í neitt súkkulaðiát eða sollis, bara eins og
allt sé soldið tómlegt þegar maður má ekki kveikja sér í... stóð
mig að því áðan að ég var búin að borða aðeins of mikið af ávöxtum,
alveg óvart En ég er viss um að þegar ég hef haldið þetta
út í nokkra daga í viðbót verður þetta allt orðið auðveldara.
Ætla bara að vera dugleg að fara í ræktina og fá útrás þar, virkar
alltaf vel fyrir mig þegar eitthvað er að plaga mig En
þrátt fyrir allt er ég bara bjartsýn á komandi viku, er alla vega
komin með það takmark að vera búin að losa mig við þetta óvelkomna
kíló fyrir næstu vigtun, og svo nottla að halda áfram að vera
reyklaus 
Eníveis, góða helgi skvísur 
Kv.V
»
26.01.2006 00:21:50 / vaggan
Jæja þá er vigtun á morgun, fyrsta vigtunin eftir svona
svakalegt svindl Stalst til að vigta mig í ræktinni í dag,
eins og ég geri stundum á miðvikudögum, og samkvæmt því er ég búin
að þyngjast eitthvað aðeins. En það verður að hafa það, ég
verð bara gjöra svo vel að bíta í það
súra... Mér finnst það mjög mikilvægt að
mæta alltaf í vigtun þó að maður sé ekki búin að standa sig
100%, er þá allavega spark í rassinn ef maður hefur þyngst
eitthvað...
Annars er lítið annað að frétta af mér þessa dagana. Er
búin að vera ógó dugleg að mæta í gymmið og vinkonur mínar hrúgast
þangað að kaupa sér kort, rosa sniðugt En
mikið ofsalega hlakkar mig til að fá útborgað,
geta loksins fyllt ískápinn minn af grænmeti og
gúmmelaði. Já og btw, hætti að reykja í gærmorgun og er
ekkert smá stolt af mér, reyklausa vagga...
Kv.V
»
Síður: 1 2 3
|
|